Hótel Ólafsvík er 3ja stjörnu vel útbúið heilsárshótel á Snæfellsnesi. Hótelið er staðsett í hjarta Ólafsvíkur í næsta nágrenni við höfnina, upplýsingamiðstöðina og alla þónustu. Hótelið hefur allt verið endurnýjað og er vel undir það búið að taka á móti fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Öll aðstaða er eins og best er á kosið og leggur starfsfólk metnað sinn í að gera dvölina eins ánægjulega og þægilega og völ er á.
Á hótelinu eru 18 falleg tveggja manna herbergi með baðherbergi og 11 herbergi án baðherbergis. Auk þess hefur hótelið að bjóða 19 stúdióíbúðir. Í íbúðunum eru tvö einbreið rúm og svefnsófi. Íbúðirnar eru allar með baðherbergisaðstöðu, ísskáp, örbylgjuofni, fjölrásasjónvarpi og borðbúnaði sem hentar vel fyrir fjölskyldu eða 4 persónur.
Á Hótelinu er glæsilegur veitingasalur og tekur hann um 90-100 manns í sæti. Boðið er upp á fjölbreyttan matseðill sem hentar vel bæði einstaklingum og hópum.
Einnig er á hótelinu bar sem tekur 50 manns í sæti. Á barnum er breiðtjald sem býður upp á sjónvarpsdagská hvaðanæva úr heiminum, má þar nefna beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum og Formúlu1 meðal annars. Frá barnum er útgengt út á verönd en þaðan er útsýni yfir hafnarsvæðið og hægt að fylgjast með þegar bátarnir koma að og fara frá landi.
Félagsheimilið Klifi er í göngufæri frá hótelinu. Á félagsheimilinu er hægt að halda stærri samkomur, t.d ættarmót, þorrablót, jólaböll o.fl. Einnig er á félagsheimilinu vel útbúin ráðstefnuaðstaða sem hentar vel fyrir hvers kyns ráðstefnur litlar sem og stórar.
Tækjabúnaður
• Sjónvarp
• Myndbandstæki
• Myndvarpi
• Flettitöflur
• Fax

