Hótel Akureyri er skemmtilegt hótel í hjarta Akureyrar. Þaðan er stutt að ganga í alla þjónustu sem og
afþreyingu.
Hótelið býður uppá vinalega og góða þjónustu og rólegt andrúmsloft. Það er staðsett utan við miðbæinn og
er því laust við hávaðan sem honum fylgir. Herbergin eru 19 og státa mörg þeirra af glæsilegu útsýni yfir
Akureyrarpoll.
Herbergin eru hlýleg, með baðherbergi, kæliskáp, síma, fjölrása sjónvarpi og þráðlausu interneti.
Herbergin eru á þremur efri hæðum húsins en rúmgóður morgunverðarsalur og setustofa á neðri hæð. Hótel Akureyri er
reyklaust hótel. Næg bílastæði eru við hótelið.
Skammt frá hótelinu eru fjölmargir veitingarstaðir, kaffihús og ölkrár. Einnig er hægt að kaupa áfenga sem og óáfenga drykki
í gestamóttökunni. Margir af áhugaverðustu stöðum bæjarins eru í næsta nágrenni við hótelið.
Hótel Akureyri
Kt. 650601-2110
Hafnarstræti 67
600 Akureyri
Sími: 462 5600
Fax: 462 5601
Veffang: www.hotelakureyri.is
Netfang: hotelakureyri@hotelakureyri.is

